Lítið á mannkynið sem eina sál og einn líkama

Hægt er að líta á mannkynið sem eina heild eða einn líkama ef svo má segja. Ef einn hluti verður veikur hefur það áhrif á allan líkamann. Hingað til hafa menn verið uppteknir af veraldlegri siðmenningu en algjörlega horft fram hjá því að þroska með sér andlega siðmenningu en það er einmitt undirrót vandamála heimsins, þ.e.a.s. skortur á andlegri sýn. Eftirfarandi tilvitnanir útskýra frekar hvað ég á við.

 

 CXX. Ó, þér kjörnir fulltrúar fólksins í hverju landi! Takið ráð saman og hafið hugann við það eitt sem getur gagnað mannkyninu og bætt kjör þess, ef þér tilheyrið hinum forsjálu. Lítið á heiminn sem mannslíkama sem í upphafi var heilbrigður en hefur af ýmsum ástæðum orðið fórnarlamb alvarlegra meinsemda og sjúkdóma. Ekki einn dag fékk hann ró, nei, sjúkdómurinn elnaði því hann féll í hendur fákænna lækna sem gáfu persónulegum ástríðum sínum lausan tauminn og lentu í hrapallegum villum. Og ef hluti þess líkama fékk einhverju sinni bót meina sinna fyrir umönnun hæfs læknis, voru aðrir hlutar hans jafn þjáðir og fyrr. Þannig fræðir yður gjörþekkjandinn, hinn alvísi.
Vér sjáum hann í dag í höndum stjórnenda sem eru svo ölvaðir af drambi að þeir sjá ekki hvað þeim er fyrir bestu og geta þaðan af síður viðurkennt opinberun sem er jafn sérstæð og full áeggjana og þessi. Og hvenær sem einhver þeirra reyndi að bæta kjör hans, hafði hann sinn eigin ávinning að markmiði, hvort sem hann viðurkenndi það eða ekki. Verðleikaleysi þessa markmiðs hefur skert vald hans til að lækna eða græða.
Það sem Drottinn hefur ákvarðað sem æðsta læknisdóminn og máttugasta meðalið til græðingar alls heimsins er eining allra þjóða hans í einum allsherjar málstað, einni sameiginlegri trú. Þetta getur aldrei tekist nema fyrir vald hæfs, alvoldugs og innblásins læknis. Þetta er vissulega sannleikurinn og allt annað er einskær villa.

   
-Bahá'í ritningarnar

 

CVII. Drottinn yðar, hinn almiskunnsami, elur í hjarta sínu þá ósk að sjá allt mannkynið sem eina sál og einn líkama. Hraðið yður að fá skerf yðar af mikilli miskunn og náð Guðs á þessum degi sem er öllum dögum fremri. Hversu mikil hamingja bíður ekki þess mann sem hefur yfirgefið allt sem hann á í löngun sinni til að öðlast það sem er af Guði! Vér berum því vitni að slíkur maður er meðal hinna blessuðu Guðs.

     -Bahá'í ritningarnar

 

   Hvað varðar muninn á þeirri efnislegu siðmenningu, sem nú

er við lýði, og þeirri guðlegu siðmenningu, sem er meðal þeirra

gæða, sem koma mun [... ], þá er hann þessi:

Efnisleg siðmenning aftrar fólki frá glæpsamlegum gerðum

með refsi- og hefndarlögum; en þótt lögum til að hefnast á

og refsa manninum fjölgi í sífellu, eins og þér sjáið, þá eru

samt sem áður ekki til nein lög, sem verðlauna hann. Í öllum

borgum Evrópu og Ameríku hafa miklar byggingar verið

reistar sem fangelsi fyrir glæpamennina.

   En himnesk siðmenning þjálfar sérhvern meðlim samfé-

lagsins að því marki, að enginn, að örfáum undanskildum,

mun fást til að fremja glæp. Það er mikill munur á því að

fyrirbyggja glæpi með ráðstöfunum, sem eru ofsafengnar og

hefnandi, og að upplýsa fókið og miðla því andlegleika,

þannig að það muni forðast allt glæpsamlegt athæfi án

nokkurs ótta við refsingu eða hefnd. Það mun að sönnu líta á

sjálfa framningu glæpsins sem mikla smán og í sjálfu sér hina

grimmilegustu allra refsinga. Það mun verða hugfangið af

mannlegum fullkomnunum og mun helga líf sitt öllu, sem

fært getur heiminum ljós og stuðlar að eflingu þeirra eigin-

leika, sem eru þóknanlegir við heilaga fótskör Guðs.

   Sjáið því hversu mikill munurinn er á efnislegri siðmenn-

ingu og himneskri. Með valdbeitingum og refsingum reynir

efnisleg menning að hindra fólkið frá misgerðum, frá því að

valda þjóðfélaginu tjóni og fremja glæpi. En í himneskri sið-

menningu er einstaklingurinn skilyrtur með þeim hætti, að

hann forðast glæpaverk án nokkurs ótta við refsingu, lítur á

glæpinn sjálfan sem hina þungbærustu þjáningu og ein-

setur sér með ákefð og fögnuði, að öðlast dyggðir mannkyns-

ins, efla mannlegar framfarir og útbreiða ljós um allan heim.

 
    -Bahá'í ritningarnar

 


mbl.is Jafnvel sérfræðingar eru gáttaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Regin á rökstól

Höfundur

Jakob Regin Eðvarðsson
Jakob Regin Eðvarðsson
"Þess er ekki að  miklast sem elskar föðurland sitt heldur þess sem elskar heiminn allan."

    Baha'u'llah

Tónlistarspilari

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...ulae_929289
  • 2009-09-28 916352.gif
  • 2009-09-28.gif
  • ...ghts_877341
  • ..._img_9367_1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 17519

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband